www.fgks.org   »   [go: up one dir, main page]

Stjörnuspá mán. 22. júl. 2024

Stjörnuspá
mán. 22. júl. 2024

21. mars - 19. apríl

Þú þarft að passa að sambönd þín við vini og vandamenn staðni ekki. Standsetning húsnæðis, endurbætur eða verslunarleiðangur fyrir heimilið kætir þig mjög.

20. apríl - 20. maí

Reyndu að sættu þig við það sem þú færð ekki breytt og njóta svo lífsins. Peningamálin eru með besta móti.

21. maí - 20. júní

Dagurinn í dag hentar ekki til trúnaðarsamtala. Njóttu þess að eiga rólegan dag, en mundu að ný verkefni bíða handan hornsins.

21. júní - 22. júlí

Vandamál sem hefur íþyngt þér um hríð virðist skyndilega ofureinfalt. Mundu að börnum fylgir mikil ábyrgð.

23. júlí - 22. ágúst

Hlustaðu á ráð og tillögur annarra þótt sumar þeirra kunni að virðast undarlegar í fyrstu. Mundu að dropinn holar harðan stein.

23. ágúst - 22. september

Reyndu að fá yfirsýn yfir heildarmyndina án þess að hafa áhyggjur af smáatriðunum. Leitaðu aðstoðar ef þú þarft á henni að halda. Farðu til læknis ef þú hefur áhyggjur af heilsunni.

Vog
23. september - 22. október

Búðu þig undir mikilvægar fréttir frá yfirmanni þínum á næstu vikum. Á misjöfnu þrífast börnin best. Þú ert með allt á hreinu í fjármálunum.

23. október - 21. nóvember

Auðgaðu andann með því að lesa eitthvað, bók er best vina. Þú átt erfitt með að neita vini um greiða.

22. nóvember - 21. desember

Þú ert í erfiðri stöðu núna og hluta þess getur þú rakið til þín sjálfs. Vertu tilbúinn að aðstoða vin þurfi hann á stuðningi þínum að halda.

22. desember - 19. janúar

Brjóttu odd af oflæti þínu og þiggðu aðstoð samstarfsmanna þinna. Reyndu að komast að því hvað það er sem þú vilt í raun og veru og hvar viltu vera eftir fimm ár?

20. janúar - 18. febrúar

Það er nauðsynlegt að kynna sér vel smáa letrið áður en skrifað er undir. Oft veltir lítil þúfa þungu hlassi.

19. febrúar - 20. mars

Það er nauðsynlegt þegar fjármálin eru skoðuð að reyna ekki að blekkja sjálfan sig með einhverjum hundakúnstum. Margur er knár, þó hann sé smár.

Hvernig eiga merkin saman?

Veldu stjörnumerki úr valgluggunum að neðan og smelltu svo á Birta.
og