www.fgks.org   »   [go: up one dir, main page]

UMF Stjarnan - Vörumerkjahandbók - Ásýndavísir 2022

Page 1

stjarnan@stjarnan.is www.stjarnan.is [+354] 565 1940 ÁSÝNDARVÍSIR STJARNAN VÖRUMERKJAHANDBÓK 2022 - 2023 UMF Stjarnan Stjörnuheimilinu v/ Ásgarð 210 Garðabær, Ísland

STJARNAN VÖRUMERKJAHANDBÓK

2019

ÁSÝNDARVÍSIR

Efnisyfirlit

Kynning - Af hverju vörumerkjaleiðbeiningar?

Hvaðan komum við?

Vörumerkið

Ásýnd

Merkisgerð félagsins

Rými í kringum merkið og stærð

Stjarnan — Læsingar á félagsmerki

Afbrigði merkisins

Lóðrétt merki

Lárétt merki Litur á félagsmerki

Einlitt merki

Grátóna merki

Röng notkun á merkinu Litaspjald félagsins

Myndastíll og stemning

Leturgerðir félagsins

Miðlun vörumerkisins

Tónn og rödd Stjörnunnar

UMF STJARNAN │ +354 565 1940 │ stjarnan@stjarnan.is VÖRUMERKJAHANDBÓK │ UMF STJARNAN
1 2 3 4 5 6 7 8 9 11 13 14 15 16 17 20 23 25 26 1.0 2.0 3.0 4.0 4.1 4.2 4.3 4.4 4.4.1 4.4.2 4.5 4.6 4.7 4.8 4.9 4.10 4.11 5.0 5.1

Einkunnarorð Stjörnunnar

Tölvupóstur

Táknmyndir félagsins

Nafnspjöld Stjörnunnar Bréfsefni Stjörnunnar

Umslag Stjörnunnar

Leiðbeiningar og reglur um samfélagsmiðla Stjörnunnar

Útlit á Instagram-færslum

Útlit Facebook-viðburða

PowerPoint-kynning félagsins

Upplýsingaplakat

Kynningarplakat

Tækifæriskort

Annað efni Aðgangskort

Skilríki/ Auðkenni

Skrifblokk Stjörnunnar

Vefsíða

Opinber vefsíða Stjörnunnar

VÖRUMERKJAHANDBÓK │ UMF STJARNAN UMF STJARNAN │ +354 565 1940 │ stjarnan@stjarnan.is
5.2 5.3 5.4 5.5 5.6 5.7 5.8 5.9 5.10 5.11 5.12 5.13 5.14 6.0 6.1 6.2 6.3 7.0 7.1 27 28 30 31 32 33 34 37 38 39 41 42 43 44 45 46 47 48 49

1.0 KYNNING — AF HVERJU VÖRUMERKJALEIÐBEININGAR?

Á þeirri vegferð okkar að efla líkams- og heilsurækt í formi keppnis- og almennings íþrótta hjá öllum aldurshópum í Garðabæ og auka samkennd bæjarbúa með virkri þátt töku í íþrótta- og félagsstarfi er mikilvægt að halda gildum og tilgangi félagsins á lofti og gæta þess að það endurspeglist í öllum þeim störfum sem unnin eru af félaginu eða fyrir félagið.

Til að tryggja samræmi í áherslum og ásýnd félagsins hjá öllum deildum er mikilvægt að settar séu upp leiðbeiningar um notkun vörumerkisins og ásýnd þess á öllum helstu snertiflötum. Þetta hjálpar okkur að auðken na félagið og þau gildi sem starfsemi þess stendur fyrir.

UMF STJARNAN │ +354 565 1940 │ stjarnan@stjarnan.is VÖRUMERKJAHANDBÓK │ UMF STJARNAN 1

2.0 HVAÐAN KOMUM VIÐ

Saga félagsins

UMF Stjarnan er stofnað af Braga Friðrikssy ni þann 30. október 1960. Félagið var upp haflega stofnað sem æskulýðsfélag en fyrstu deildir þess, knattspyrnu- og handknattleiks deild, voru stofnaðar 1971 og því þá breytt í fjölgreina íþróttafélag. Árið 1976 bættist við blakdeild, 1982 fimleikadeild, 1989 sunddeild, 1993 körfuknattleiksdeild, 1995 almennings íþróttadeild og árið 2013 var kraftlyftingadeild stofnuð. Deildirnar eru misstórar og starfsemi þeirra ólík að umfangi en félagið hefur stæk kað jafnt og þétt í gegnum árin með auknum íbúafjölda Garðabæjar.

Framtíðarsýn og stefna Íþróttafélag í fremstu röð byggt á traustu og faglegu starfi í keppni, rekstri og þjónustu sem:

Sameinar Garðbæinga. Eflir lýðheilsu ungra sem aldinna. Vex og dafnar í takt við bæjarfélagið. Sjálfboðaliðar og fagfólk vill vinna fyrir. Afreksíþróttafólk vill berjast fyrir.

Eykur lífsgæði í Garðabæ.

VÖRUMERKJAHANDBÓK │ UMF STJARNAN 2 UMF STJARNAN │ +354 565 1940 │ stjarnan@stjarnan.is

3.0 VÖRUMERKIÐ

Saga Stjörnumerkisins

Upphaflega Stjörnumerkið var hannað af Einari D. G. Gunnlaugssyni í vetrarbyrjun 1968, Einar var þá starfsmaður í versluninni Ingólfskjör í Ásgarði. Einar starfaði sem sjálf boðaliði í knattspyrnudeild Stjörnunnar 1968–1969 og sat í stjórn deildarinnar um tíma. Nokkrar mismunandi útgáfur af merkinu hafa verið notaðar í gegnum tíðina, óljóst er um uppruna þeirra en segja má að öll merkin séu byggð á upprunalega merkinu.

Núverandi Stjörnumerki var tekið í notkun árið 2007 í framhaldi af höfðinglegri gjöf Rótarýklúbbsins Görðum til félagsins, en þá um vorið gaf klúbburinn Stjörnunni glæsile gan hátíðarfána og er núverandi merki unnið upp úr miðju fánans. Hönnuður merkisins er Ernst J. Backmann auglýsingateiknari.

Gildi

Gildi félagsins eru:

Samvinna – Fagmennska – Árangur – Gleði Eiga þau að endurspeglast í allri ásýnd og starfsemi félagsins.

Tilgangur og hlutverk

Tilgangur félagsins er að efla líkamsog heilsurækt í formi keppnis- og almenningsíþrótta hjá öllum aldurshópum í Garðabæ. Enn fremur að efla samkennd bæjarbúa með virkri þátttöku í íþrótta- og félagsstarfi.

UMF STJARNAN │ +354 565 1940 │ stjarnan@stjarnan.is VÖRUMERKJAHANDBÓK │ UMF STJARNAN 3
VÖRUMERKJAHANDBÓK │ UMF STJARNAN 4 UMF STJARNAN │ +354 565 1940 │ stjarnan@stjarnan.is 4.04.0 ÁSÝND »

4.1 MERKISGERÐ FÉLAGSINS

Merkið okkar er hornsteinn ásýndar félagsins. Það segir okkur hver við erum og skapar sjón rænt tákn sem stendur fyrir hlutverk okkar. Merkið okkar samanstendur af myndrænni grun neiningu með sterkum og læsilegum texta sem leggur áherslu á auðkenni okkar. Merkið okkar samræmir og nýtist við mismunandi aðstæður. Það er mjög sjónrænt og minnisstætt sökum þess hversu myndrænt það er.

Merkið

Samanstendur af sterkri og auðkenn andi hvítri stjörnu þar sem stafurinn S stendur út úr henni miðri. Aðalmerkið er þannig að stjarnan er hvít og stafurinn S og svæðið sem myndar stjörnuna er blátt. Hvað varðar aðra litaða bakgrunna þá má finna valkosti fyrir þá síðar í þessari handbók.

Titill merkisins

Samanstendur aðallega af vörumerkinu og undirtexta sem fylgir því. Leturgerðin er Verdana sem gerir titil merkisins breiðan og skapar gott bil milli stafanna sem gerir hann mjög læsilegan, jafnvel í litlum stærðum.

Merkið

Titill merkisins

UMF STJARNAN │ +354 565 1940 │ stjarnan@stjarnan.is VÖRUMERKJAHANDBÓK │ UMF STJARNAN 5
Stjarnan merki

4.2 R ÝMI Í KRINGUM MERKIÐ OG STÆRÐ

Til að tryggja að svæðið umhverfis merkið sé laust við allan texta eða grafík höfum við skil greint það rými sem á að vera autt. Þetta gefur merkinu náttúrulegt andrými og sýnir það á besta mögulega hátt. Autt rými Stjörnumerkisins er í hlutfalli við hönnun merkisins. Stærðir rýmisins eru þær sömu og hæð og breidd stafsins „S“ í Stjarnan.

LÁGMARKSSTÆRÐ

Afritið aldrei merkið í minni stærðum en mælst er til hér því það mun koma niður á læsileika. Lágmarksstærð merkisins er 0,5 cm á prenti, mælt eftir breidd merkisins.

VÖRUMERKJAHANDBÓK │ UMF STJARNAN 6 UMF STJARNAN │ +354 565 1940 │ stjarnan@stjarnan.is
EINGÖNGU FÉLAGSMERKI MIÐSTILLT FÉLAGSMERKI BREIÐARI STILLING FÉLAGSMERKIS VINSTRAÐ FÉLAGSMERKI 4.3 STJARNAN — LÆSINGAR Á FÉLAGSMERKI Stjörnumerkið verður notað á mörgum mismunandi stöðum og til að koma í veg fyrir að það líti illa út höfum við gefið Stjörnumerkið út í fjórum mismunandi læsingum. Það má nota með eða án kjörorðsins „Garðabær“, allt eftir þörfum. Nota má útgáfuna án kjörorðsins þegar stærðin kemur í veg fyrir að það sé læsilegt. BRAND MANUAL │ UMF STJARNAN 7 UMF STJARNAN │ +354 565 1940 │ stjarnan@stjarnan.is

4.4 AFBRIGÐI MERKISINS

Hver deildanna sjö hefur sitt eigið merki í fjórum mismunandi afbrigðum og aðeins má nota þau. Notið ávallt litaútgáfuna nema ef litavinnsla er ekki möguleg. Þegar svo ber undir verður að nota hvítu eða svörtu útgáfuna og við sérstakar aðstæður má nota gráu útgáfuna.

1. Lóðrétt merki + kjörorð

Við höfum miðstillta læsingu merkisins með textanum Stjarnan og kjörorðinu í venjulegu Verdana-letri.

2. Lóðrétt merki + kjörorð

Við höfum miðstillta læsingu merkisins með textanum Stjarnan og kjörorðinu í feitletruðu Verdana

3. Lárétt merki + kjörorð

We have the left-aligned logo lockup with the text Stjarnan and the Tagline in regular Verdana.

4. Lárétt merki + kjörorð

Við höfum vinstristillta læsingu merkisins með kjörorðinu í feitletruðu Verdana.

VÖRUMERKJAHANDBÓK │ UMF STJARNAN 8 UMF STJARNAN │ +354 565 1940 │ stjarnan@stjarnan.is
XXXXXXXXX
XXXXXXXX

4.4.1

LÓÐRÉTT MERKI

Lóðrétta merkið okkar kemur í tveimur afbrigðum. Eitt með meðfylgjandi textanum „Stjarnan“ sem og íþróttadeildinni og hitt aðeins með íþróttadeildinni. Bæði afbrigðin eru sérstaklega gagnleg við aðstæður þar sem texti og útlit er miðstillt eða þegar breiddin er lítil.

UMF STJARNAN │ +354 565 1940 │ stjarnan@stjarnan.is VÖRUMERKJAHANDBÓK │ UMF STJARNAN 9

LÓÐRÉTT MERKI + KJÖRORÐ

VÖRUMERKJAHANDBÓK │ UMF STJARNAN 10 UMF STJARNAN │ +354 565 1940 │ stjarnan@stjarnan.is

4.4.2

LÁRÉTT MERKI

Lárétta merkið okkar kemur í tveimur afbrigðum. Eitt með meðfylgjandi textanum „Stjarnan“ sem og íþróttadeildinni og hitt aðeins með íþróttadeildinni. Bæði afbrigðin eru sérstaklega gagnleg við aðstæður þar sem texti og útlit er vinstristillt eða þar sem hæð er lítil.

LÁRÉTT MERKI + KJÖRORÐ

UMF STJARNAN │ +354 565 1940 │ stjarnan@stjarnan.is VÖRUMERKJAHANDBÓK │ UMF STJARNAN 11

LÁRÉTT MERKI + KJÖRORÐ

VÖRUMERKJAHANDBÓK │ UMF STJARNAN 12 UMF STJARNAN │ +354 565 1940 │ stjarnan@stjarnan.is

Hvar það skal notað Aðeins skal nota merkið með hvítum út línum þegar það þarf að leggja áherslu á jaðar merkisins eða þegar merkið er sett á bakgrunn sem hefur sömu bláu blæbrigðin. Hins vegar skal ávallt leitast eftir því að nota litaða merkið.

4.5 LITUR Á FÉLAGSMERKI STJARNAN BLÁR HVÍTUR : C100 M75 Y0 K25 : Blue 072 C : R6 G14 B159 : 060E9F : C0 M0 Y0 K0 : — : R225 G225 B225 : FFFFFF Í Stjörnumerkinu er notast við tvo liti: Stjarnan-blár og hvítur. Stjarnan-blár er kjarninn í vöru merkjaásýnd okkar. Þar sem litaða merkið er ekki viðeigandi skal nota einlitu útgáfuna, hvort sem er í svörtu eða hvítu.
CMYK PMS RGB Web/ HEX CMYK PMS RGB Web/ HEX BRAND MANUAL │ UMF STJARNAN 13 UMF STJARNAN │ +354 565 1940 │ stjarnan@stjarnan.is

4.6 EINLITT MERKI

Merkið er til einlitt, sem er útgáfa af litaða merkinu. Í einlitu útgáfunni er einn litur notaður í öllu merkinu. Ástæðan er sú að hún er hentug þegar verið er að nota merkið á óhefðbundinn hátt. Með því að vera með okkar eigið merki í svarthvítu komum við í veg fyrir að aðrir eigi við okkar skrár.

Hvar það skal notað

Óvenjulegir fletir

Prentun á sérvörum

Skönnun og faxsendingar

Samstarf og samvinna

VÖRUMERKJAHANDBÓK │ UMF STJARNAN 14 UMF STJARNAN │ +354 565 1940 │ stjarnan@stjarnan.is HVÍTURSVARTUR
hvítt merki
svart merki : C0 M0 Y0 K0 : — : R225 G225 B225 : FFFFFF : C60 M40 Y40 K100 : Pro. Black C : R0 G0 B0 : 000000
CMYK PMS RGB Web/ HEX CMYK PMS RGB Web/ HEX

GRÁTÓNA MERKI

Merkið er einnig til í grárri útgáfu. Aðeins má nota þessa útgáfu í sérstökum tilvikum þar sem ekki er æskilegt að nota litaða eða einlita félagsmerkið.

Hvar það skal notað

• Óvenjulegir fletir

Prentun á sérvörum

Skönnun og faxsendingar

Samstarf og samvinna

LJÓSGRÁTT

HVÍTUR

UMF STJARNAN │ +354 565 1940 │ stjarnan@stjarnan.is VÖRUMERKJAHANDBÓK │ UMF STJARNAN 15 4.7
CMYK PMS RGB Web/ HEX WHITE : C0 M0 Y0 K0 : — : R225 G225 B225 : FFFFFF CMYK PMS RGB Web/ HEX
: C12 M8 Y8 K23 : Cool Gray 4 C : R188 G189 B188 : BCBDBC

4.8 RÖNG NOTKUN Á MERKINU

Það er mjög mikilvægt að nota merkið alltaf á sínu upprunalega formi þannig að það sé alltaf eins. Ekki skal rangtúlka, draga úr eða bæta við merkið og ekki skal gera tilraun til að breyta merkinu á nokkurn hátt. Ekki er leyfilegt að snúa, varpa, skala það í röngum hlutföllum eða á nokkurn hátt breyta lit merkisins. Dæmin að neðan sýna ranga notkun á merkinu.

VÖRUMERKJAHANDBÓK │ UMF STJARNAN 16 UMF STJARNAN │ +354 565 1940 │ stjarnan@stjarnan.is

4.9 LITASPJALD FÉLAGSINS

Til að halda litum Stjörnunnar eins samræmdum og mögulegt er milli ólíkra miðla höfum við skilgreint vörumerkjalit fyrir hvert ferli. Litaspjaldið er hannað þannig að það sé samsvörun milli merkisins og hinna mismunandi vörumerkjaásýnda sem Stjarnan hefur.

PANTONE (PMS, Pantone Matching System)

Notkun: Prentun.

Aðeins fyrir offsetprentun og er vanalega notað fyrir verk sem eru í einum eða tveimur litum.

Pantone-blek er einn mettaður litur sem gefur prentverkinu hreinustu og sönnustu litaniður stöðuna.

CMYK (blágrænn, ljósfjólublár, gulur, svartur)

Notkun: Prentun.

Notkun í offsetprentun og stafrænni prentun. Hentar vel fyrir verk í fullum litum eins og bæklinga, dreifibréf, plaköt, póstkort o.s.frv. CMYK er kallað fjögurra lita prentun. Samsetning fjögurra gagnsærra bleklita (blágrænn, ljósfjólublár, gulur og svartur). Við nánari skoðun á CMYK-prentun sjást fjórir litir sem skarast en þegar litið er á PMS sést mettaður litur.

RGB (rauður, grænn, blár)

Notkun: Á skjá.

RGB er ferli þar sem litir eru myndaðir á skjá með því að nota samsetningu á rauðum, grænum og bláum. RGB-litir virðast líflegri en á prentaðri síðu þar sem það eru fleiri mögulegir litir.

HEX/WEB (sextándakerfislitur)

Notkun: Á skjá fyrir vefsvæði.

Hex er einnig notaður á skjám og er í raun stuttkóði fyrir RGB. HEX-litur er sex stafa samsetning á stöfum og tölum.

UMF STJARNAN │ +354 565 1940 │ stjarnan@stjarnan.is VÖRUMERKJAHANDBÓK │ UMF STJARNAN 17

Litaspjald félagsmerkis Stjörnunnar samanstendur af þremur litum: Stjarnan-blár, svartur og hvítur. Stjarnan-blár er kjarninn í vörumerkjaásýnd okkar og ætti að birtast hvenær sem þess er kostur svo félagsmenn þekki vörumerkið okkar strax.

FÉLAGSLITAKERFI

HVÍTUR

STJARNAN BLÁR

Litakóði

CMYK Pantone RGB Web/HEX

SVARTUR

Litakóði

Pantone

Web/HEX

Litakóði

CMYK Pantone RGB Web/HEX

VÖRUMERKJAHANDBÓK │ UMF STJARNAN 18 UMF STJARNAN │ +354 565 1940 │ stjarnan@stjarnan.is
CMYK
RGB
: C100 M75 Y0 K25 : Blue 072 C : R6 G14 B159 : 060E9F : C60 M40 Y40 K100 : Pro. Black C : R0 G0 B0 : 000000 : C0 M0 Y0 K0 : — : R225 G225 B225 : FFFFFF
01. 02. 03. OKKAR
UMF STJARNAN │ +354 565 1940 │ stjarnan@stjarnan.is VÖRUMERKJAHANDBÓK │ UMF STJARNAN 19 Hægt er að nota ýmis blæbrigði af kaldgráum til að bæta áferð og dýpt við texta, bakgrunn og myndir. Litakóði CMYK PMS RGB Web/HEX Litakóði CMYK PMS RGB Web/HEX Litakóði CMYK PMS RGB Web/HEX Litakóði CMYK PMS RGB Web/HEX : C9 M0 Y0 K90 : Cool Gray 11 C : R49 G51 B53 : 313335 : C0 M0 Y0 K10 : Cool Gray 2 C : R230 G231 B232 : E6E7E9 : C12 M8 Y8 K23 : Cool Gray 4 C : R188 G189 B188 : BCBDBC : C6 M0 Y0 K55 : Cool Gray 7 C : R134 G136 B138 : 86888A DÖKK GRÁR MIÐLUNGS GRÁTT MJÖG LJÓS GRÁTT LJÓSGRÁTT 04. 05. 06. 07. Auka valmöguleikar við litakerfi félagsins

4.10 MYNDASTÍLL OG STEMNING

Stíll og stemning mynda Stjörnunnar er lífleg, þróttmikil, jákvæð og lýsandi. Grunnstefið getur til dæmis miðlað einni af mörgum íþróttagreinum Stjörnunnar, starfi klúbbsins eða skipulagi.

Ljósmyndir skulu vera í lit og eiga að tengjast lit merkisins eða litakerfinu.

Mælt er með notkun ljósmynda bæði í efni til notkunar innanhúss og í útgáfum sem ætlaðar eru fyrir félagið sem og í Power Point-kynningum. Þær styrkja skilaboð Stjörnunnar í einstökum útgáfum og kyn ningum.

Notkun á ljósmyndum á einnig við á vef svæðum og samfélagsmiðlum.

Ef fólk er á myndunum sem á að gefa út er mikilvægt að fá samþykki frá viðkomandi einstaklingum.

Við mælum með notkun á Adope Photoshop Lightroom CC í myndvinnslu. Það er ókeypis en auðskiljanlegur myndvinnsluhugbúnaður. Lightroom er einnig með öflugri útgáfu sem þarf að greiða fyrir en ókeypis útgáfan inniheldur frábær tól fyrir grunnnotkun.

VÖRUMERKJAHANDBÓK │ UMF STJARNAN 20 UMF STJARNAN │ +354 565 1940 │ stjarnan@stjarnan.is
UMF STJARNAN │ +354 565 1940 │ stjarnan@stjarnan.is VÖRUMERKJAHANDBÓK │ UMF STJARNAN 21
VÖRUMERKJAHANDBÓK │ UMF STJARNAN 22 UMF STJARNAN │ +354 565 1940 │ stjarnan@stjarnan.is

4.11

LETURGERÐIR FÉLAGSINS

Leturgerð félagsins og hugmyndafræði

Verdana er öflug og traust vefletur gerð vegna einfaldrar uppbyggingar og skerpu, stafir eru stórir og tærir og stafabil er jafnt.

Verdana er sans-serif stafagerð sem þýðir að leturgerðin er án litlu fótanna, sem gerir leturgerðina nútímalegri og gefur til kynna nútíma leg gildi. Leturgerðin er hönnuð af Matthew Carter.

VERDANA REGULAR

a á b (c) d ð e é f g h i í j k l m n o ó p (q) r s

t u ú v (w) x y ý (z) þ æ ö

VERDANA BOLD

a á b (c) d ð e é f g h i í j k l m n o ó p (q) r s t u ú v (w) x y ý (z) þ æ ö

UMF STJARNAN │ +354 565 1940 │ stjarnan@stjarnan.is VÖRUMERKJAHANDBÓK │ UMF STJARNAN 23
A Á B (C) D Ð E É F G H I Í J K L M N O Ó P
(Q) R S T U Ú V (W) X Y Ý (Z) Þ Æ Ö
A Á B (C) D Ð E É F G H I Í J K L M N O Ó P (Q) R S T U Ú V (W) X Y Ý (Z) Þ Æ Ö

VERDANA ITALIC a á b (c) d ð e é f g h i í j k l m n o ó p (q) r s t u ú v (w) x y ý (z) þ æ ö

VERDANA BOLD ITALIC a á b (c) d ð e é f g h i í j k l m n o ó p (q) r s t u ú v (w) x y ý (z) þ æ ö

VÖRUMERKJAHANDBÓK │ UMF STJARNAN 24 UMF STJARNAN │ +354 565 1940 │ stjarnan@stjarnan.is
A Á B (C) D Ð E É F G H I Í J K L M N O Ó P (Q) R S T U Ú V (W) X Y Ý (Z) Þ Æ Ö
A Á B (C) D Ð E É F G H I Í J K L M N
O Ó P (Q) R S T U Ú V (W) X Y Ý (Z)
Þ Æ Ö
TÖLUR 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 SÉRSTAKIR STAFIR ! ” # $ % & ’ ( ) * + , - . / : ; < = > ? @ [ \ ] ^ _ ` { | } ~ AaBb
UMF STJARNAN │ +354 565 1940 │ stjarnan@stjarnan.is VÖRUMERKJAHANDBÓK │ UMF STJARNAN 25 5.05.0 MIÐLUN VÖRUMERKISINS »

5.1 TÓNN OG RÖDD STJÖRNUNNAR

HVER ER TÓNNINN Í SKILABOÐUM OKKAR SEM FULLTRÚAR FÉLAGSINS?

Mikilvægt er að öll verk, skilaboð, hegðun og ásýnd félagsins einkennist af þeim gildum sem félagið stendur fyrir, hver sem vettvangurinn er hverju sinni. Þessi fjögur hugtök skulu því einkenna allt starf Stjörnunnar þannig að allir

þeir sem skipta við félagið finni hvernig fag mennska og gleði umlykur alla samvinnu og að það í sameiningu skapi þann árangur sem að er stefnt.

VÖRUMERKJAHANDBÓK │ UMF STJARNAN 26 UMF STJARNAN │ +354 565 1940 │ stjarnan@stjarnan.is

5.2 EINKUNNARORÐ STJÖRNUNNAR

Til að gefa félaginu stefnu og áherslu völdum við einkunnarorð fyrir Stjörnuna sem vörumerki og einkunnarorð fyrir ýmsar íþróttagreinar okkar, sem lyfta vörumerki okkar á æðra plan. Það hjálpar okkur við að skara fram úr samkeppnisaðilum okkar og við það hvernig fólk upplifir okkur bæði innan félagsins sem utan. Eftirfarandi yfirlýsingar mynda þá ímynd sem Stjarnan vill hafa í hugum almennings og þær má nota á mismunandi vegu hvort sem það er fyrir birtingar á netinu eða utan þess.

EINKUNNARORÐ FÉLAGSINS ERU

SLAGORÐ FÉLAGSINS ERU

UMF STJARNAN │ +354 565 1940 │ stjarnan@stjarnan.is VÖRUMERKJAHANDBÓK │ UMF STJARNAN 27
Frá Stjörnunni ég aldrei vík, sú tilfinning er engu lík
Skíni Stjarnan InnMeðBoltann

5.3

TÖLVUPÓSTUR

Við höfum búið til undirskrift fyrir tölvupósta til að samræma vörumerkið okkar. Hún hjálpar okkur að skapa vörumerkjavitund, traust og það sem er mikilvægast: fagmennsku og sam ræmi. Tölvupósturinn er stofnaður á Google Drive þannig að allir geta notað hann og haft vel hannaða undirskrift tölvupósts sem sýnir vörumerki Stjörnunnar í öllum tölvupóstum.

VÖRUMERKJAHANDBÓK │ UMF STJARNAN 28 UMF STJARNAN │ +354 565 1940 │ stjarnan@stjarnan.is

UPPSETNING Á UNDIRSKRIFT TÖLVUPÓSTS

1. FARÐU Á MICROSOFT TEAM

Gerðu afrit af sniðmáti undirskriftarinnar

2. OPNAÐU OG BREYTTU AFRITUÐU ÚTGÁFUNNI

Opnaðu skjalið og byrjaðu að slá inn tengiliðaupplýsingar nýju undirskriftarinnar þinnar. Þú skalt sérsníða svo að nafn þitt eða titill sé nánast í flútti við aðvörunartáknið neðst vinstra megin. Dragðu bláu lóðréttu línuna þannig að hún passi.

3. HALTU EÐA EYDDU TÁKNUM

Haltu eða eyddu þannig að táknin séu sérsniðin eftir þínum prófíl.

4. TENGLAR

Hægrismelltu á táknin og gerðu tengla á þínar vefsíður.

6. AFRITAÐU ALLT

Afritaðu allt og opnaðu póstinn þinn.

7. FARÐU Í TÖLVUPÓSTSTILLINGAR ÞÍNAR

Finndu stillingar og skrunaðu niður í gegnum hinar ýmsu stillingar þar til þú kemur í hlutann Undirskrift, þar sem þú sérð textareit.

8. SETTU INN OG VISTAÐU

Límdu nýju undirskriftina og vistaðu.

UMF STJARNAN │ +354 565 1940 │ stjarnan@stjarnan.is VÖRUMERKJAHANDBÓK │ UMF STJARNAN 29

TÁKNMYNDIR FÉLAGSINS

Tákn okkar hafa verið hönnuð þannig að þau hæfi merkinu sjónrænt. Táknin hjálpa okkur að búa til samræmda mynd út á við sem notuð er á ólíkum vettvangi. Notið ávallt litaútgáfuna nema ef litavinnsla er ekki möguleg eða það á ekki að leggja áherslu á táknið. Þegar svo ber undir verður að nota hvítu eða svörtu útgáfuna.

VÖRUMERKJAHANDBÓK │ UMF STJARNAN 30 UMF STJARNAN │ +354 565 1940 │ stjarnan@stjarnan.is 5.4
Litakóði CMYK Pantone RGB Web/HEX Litakóði CMYK Pantone RGB Web/HEX : C100 M75 Y0 K25 : Blue 072 C : R6 G14 B159 : 060E9F : C0 M0 Y0 K0 : — : R225 G225 B225 : FFFFFF STJARNAN BLÁR HVÍTUR SVARTUR Litakóði CMYK Pantone RGB Web/HEX : C60 M40 Y40 K100 : Pro. Black C : R0 G0 B0 : 000000 Litakóði CMYK PMS RGB Web/HEX : C6 M0 Y0 K55 : Cool Gray 7 C : R134 G136 B138 : 86888A MIÐLUNGS GRÁTT

5.5 NAFNSPJÖLD STJÖRNUNNAR

Nafnspjöldin verða notuð fyrir öll opinber tengsl og samskipti Stjörnunnar. Þau tryggja að Stjarnan sé eitthvað sem fólk man eftir í kjölfar viðskiptaviðburða. Þau eru góð til að afla öflugra tengsla og til að hafa samtöl persónuleg og náin. Settu þínar upplýsingar á nafnspjaldið og dreifðu því endilega til viðskiptavina þinna og samstarfsaðila. Á bakhlið spjaldsins er rúm til að setja eina eða tvær athugasemdir

UMF STJARNAN │ +354 565 1940 │ stjarnan@stjarnan.is VÖRUMERKJAHANDBÓK │ UMF STJARNAN 31

5.6 BRÉFSEFNI STJÖRNUNNAR

Jafnvel þó að tölvupóstur sé stöðluð leið skriflegra samskipta nú til dags verður bréfsefnið notað fyrir öll opinber tengsl og samskipti Stjörnunnar. Það mun styrkja vörumerkjaásýndina og gefa til kynna fagmennsku — það er einfaldlega merki á okkar starfi. Hönnunin er einföld, hrein og íburðarlaus. Textainnihald bréfsefnisins er ekki miðjað til að autt rými sem gefur hönnuninni léttleika og lestur flæðir betur.

VÖRUMERKJAHANDBÓK │ UMF STJARNAN 32 UMF STJARNAN │ +354 565 1940 │ stjarnan@stjarnan.is

5.7 UMSLAG STJÖRNUNNAR

Umslögin verða notuð fyrir öll opinber tengsl og samskipti Stjörnunnar. Settu inn staðlaða bréfsefnið og sendu skjalið þitt. Við höfum hannað mismunandi afbrigði en haldið sömu framsetningu og innihaldi hönnunar sem endurspeglar vörumerkjaásýnd Stjörnunnar og fagmennsku.

UMF STJARNAN │ +354 565 1940 │ stjarnan@stjarnan.is VÖRUMERKJAHANDBÓK │ UMF STJARNAN 33

5.8 LEIÐBEININGAR OG REGLUR UM SAMFÉLAGSMIÐLA STJÖRNUNNAR

Stjarnan er með eina Facebook-síðu og einn Instagram-aðgang fyrir félagið í heild sem haldið er utan um af starfsmanni skrifstofu. Allar tilkynningar sem tengjast starfi félagsins líkt og samningar við leikmenn eða þjálfara skulu birtast fyrst á þessum síðum ásamt Facebook-síðum og/eða Instagram-síðu viðkomandi deildar.

Hver deild hefur leyfi til að hafa tvær Face book-síður og tvo Instagram-aðganga í nafni félagsins, annan fyrir afreksstarf og hinn fyrir barna- og unglingastarfsemi deildarinnar. Hópar innan deildanna hafa ekki heimild til að stofna samfélagsmiðla í nafni félagsins nema með leyfi framkvæmdastjóra.

Tilgangur samfélagsmiðla Stjörnunnar er að upplýsa um viðburði og þá hluti sem eiga sér stað í daglegri starfsemi deildanna sem félagsmenn og aðrir gætu haft áhuga á að fræðast um.

Í öllu því fréttaefni sem félagið og deildir þess senda frá sér á samfélagsmiðlum skal ávallt gæta þess að tónn þeirra sé í samræmi við gildi félagsins og endurspegli þau.

Allar síður í nafni félagsins hafa tilsetta mynd af vörumerki Stjörnunnar í forsíðumynd en er frjálst að skipta út opnumynd á síðu sinni eins og þeim listir svo lengi sem það endurspeglar starfsemi og gildi deildarinnar.

Þó skal hafa í huga að allar tilkynningar um samninga við leikmenn eða þjálfara þurfa að berast skrifstofu til samþykkis áður en þær eru tilkynntar á samfélagsmiðlum, til frétta veita eða annarra aðila. Sérstaklega er vakin athygli á því að taka þarf tillit til vinnutíma starfsmanna varðandi samþykki samninga.

VÖRUMERKJAHANDBÓK │ UMF STJARNAN 34 UMF STJARNAN │ +354 565 1940 │ stjarnan@stjarnan.is

INNIHALD INSTAGRAM-ÁGRIPS

PRÓFÍLMYND

Notið opinbert merki Stjörnunnar

NOTANDANAFN OG NAFN

Notandanafn og nafn verða að gefa til kynna þá íþrótt/prófíl sem þú ert að kynna og hu gað skal vel að nafngiftinni þar sem hægt er að finna hvort tveggja í leitarreit Instagram.

ÁGRIP

Skrifaðu ágrip sem er styttra en 150 stafabil.

AÐGERÐAHNAPPAR

Notaðu aðgerðahnappa fyrir betri þjónustu. Ath.! Hnapparnir birtast aðeins í appinu, ekki í vefútgáfunni. Smelltu á Edit Profile og svo á Contact Options. Vertu viss um að þú hafir breytt notandareikningi þínum í Busi ness-reikning. Dæmi um aðgerðahnappa:

– Tölvupósthnappur

– Stefnuhnappur

– Hringihnappur

AÐ BÆTA VIÐ MYLLUMERKJUM OG PRÓFÍLTENGLUM Í ÁGRIPINU

Hafðu myllumerki og prófíltengla í ágripi í stað þess að láta markhóp þinn leita. Enn fremur geturðu þá einnig valið úr „eftirlíkingarreikninga“ þar sem Instagram leggur það í þínar hendur hverjir geta notað tengilinn og hverjir ekki.

ÁHERSLUMERKINGAR Á INSTAGRAM-SÖGU

Notaðu áherslumerkingar á Instagram-sögu til að sýna og kynna prófíl þinn. Notaðu gjald frjálsa appið Unfold — Create Stories til að fá hreina og samræmda framsetningu, notaðu litaúrval og framsetningu vörumerkisins.

LÖGVARIÐ MERKI

Til að staðfesta að síðan er frá félaginu og stendur í nafni þess, þurfa allar síður að óska eftir höfundastaðfestingu í gegnum Instagram.

UMF STJARNAN │ +354 565 1940 │ stjarnan@stjarnan.is VÖRUMERKJAHANDBÓK │ UMF STJARNAN 35

INNIHALD FACEBOOK -ÁGRIPS

PRÓFÍLMYND

Notið opinbert merki Stjörnunnar

FORSÍÐUMYND

Veldu grípandi forsíðumynd þar sem forsíðu myndin tekur mesta plássið og gættu þess að breyta stærðum forsíðumyndarinnar.

AÐGERÐAHNAPPAR

Bættu við aðgerðahnöppum (CTA) til að fá meiri umferð um vefsvæði Stjörnunnar eða á því tiltekna Facebook-efni sem þú vilt kynna. Til að bæta við aðgerðahnöppum á Facebook-síðunni skaltu smella á reitinn “Add a Button” og velja hvaða gerð af CTA þú vilt stofna.

UM OKKUR

Fylltu út hlutann Um okkur með grunnupplýsingum.

FESTU MIKILVÆGAR INNSENDINGAR

Festu mikilvægar innsendingar þannig að þær séu lengur efst á síðunni þinni. Slíkar innsendingar geta til dæmis verið viðburðir sem eru fram undan eða mikilvægar fréttatilkynningar. Til að festa innsendingu skaltu smella á felliörina efst í hægra horni innsendingarinnar á síðunni þinni og smella svo á „Pin to Top“.

VIÐBURÐIR

Setja skal upp viðburð fyrir kappleiki, mót eða aðra viðburði sem haldnir eru af deildum félagsins. Viðburðirnir eru búnir til undir Facebook-síðu þeirrar deildar sem er ábyrgt fyrir viðburðinum og einnig deilt inn á Facebook-síðu félagsins.

LÖGVARIÐ MERKI

Til að staðfesta að síðan er frá félaginu og stendur í nafni þess, þurfa allar síður að óska eftir höfundastaðfestingu í gegnum Facebook.

VÖRUMERKJAHANDBÓK │ UMF STJARNAN 36 UMF STJARNAN │ +354 565 1940 │ stjarnan@stjarnan.is

5.9 ÚTLIT Á INSTAGRAM-FÆRSLUM

Betri og samræmdari framsetning hefur verið hönnuð fyrir innsendingu á mismunandi sögum frá einstökum íþróttareikningum á Instagram. Hægt er að búa til sögurnar með sniðmátinu úr Photoshop. Hér getur þú breytt textanum, merkinu, bakgrunnsmynd sem og einstaklingi sem er í forsvari o.s.frv. Það eina sem þarf er Photoshop og fólk án bakgrunns.

UMF STJARNAN │ +354 565 1940 │ stjarnan@stjarnan.is VÖRUMERKJAHANDBÓK │ UMF STJARNAN 37

5.10 ÚTLIT

FACEBOOK-VIÐBURÐA

Betri og samræmdari framsetning hefur verið hönnuð fyrir innsendingu á mismunandi við burðum á Facebook. Hægt er að búa til viðburðinn með sniðmátinu úr Photoshop. Hér getur þú breytt textanum, merkinu, bakgrunnsmynd sem og einstaklingi sem er í forsvari o.s.frv. Það eina sem þarf er Photoshop og fólk án bakgrunns.

VÖRUMERKJAHANDBÓK │ UMF STJARNAN 38 UMF STJARNAN │ +354 565 1940 │ stjarnan@stjarnan.is

5.11 POWERPOINTKYNNING FÉLAGSINS

Við höfum búið til sniðmát í PowerPoint sem allir starfsmenn geta notað þannig að ásýnd Stjörnunnar hafi ávallt sömu fyrirmyndina og framsetningin sé þannig ætíð sú sama. Þar sem aðeins er unnið með þrjá liti höfum við gert PowerPoint mjög einfalt, auðþekkjanlegt og innan sniðsins. Ekki má breyta sniðmátinu eða tilreiða það á nokkurn hátt. Hægt er að bæta myndum og texta við kynninguna þannig að hún hæfi efninu.

UMF STJARNAN │ +354 565 1940 │ stjarnan@stjarnan.is VÖRUMERKJAHANDBÓK │ UMF STJARNAN 39
VÖRUMERKJAHANDBÓK │ UMF STJARNAN 40 UMF STJARNAN │ +354 565 1940 │ stjarnan@stjarnan.is

5.12

UPPLÝSINGAPLAKAT

Við höfum hannað einfalt sniðmát fyrir plakat sem nota má fyrir ýmsa viðburði eða fyrir aðrar upplýsingar sem á að dreifa. Plakatið samanstendur af valfrjálsri bakgrunnsmynd, þar á meðal gráum og gagnsæjum ferningi þar sem ætlast er til að texti og önnur grafík birtist.

UMF STJARNAN │ +354 565 1940 │ stjarnan@stjarnan.is VÖRUMERKJAHANDBÓK │ UMF STJARNAN 41

5.13

KYNNINGARPLAKAT

Kynningarplakatið samanstendur af nokkrum lögum. Baklagið samanstendur af grárri bak grunnsmynd sem er undir blárri síu. Ofan á henni er grár ferningur með valfrjálsum texta og ofan á honum er einstaklingur þar sem bakgrunnurinn af upphaflegu myndinni er fjarlægður. Hægt er sem sagt að skipta um texta, bakgrunnsmynd og einstakling.

VÖRUMERKJAHANDBÓK │ UMF STJARNAN 42 UMF STJARNAN │ +354 565 1940 │ stjarnan@stjarnan.is

5.14

TÆKIFÆRISKORT

Við höfum búið til tækifæriskort til að styrkja tengsl okkar við viðskiptavini og til að gefa persónu legri blæ í veröld sem verður sífellt stafrænni. Á sama tíma er tækifæriskort framlenging á ásýnd okkar og vörumerki og gefur viðskiptavinum okkar áheit um þjónustu og eftirminnilega upplifun.

UMF STJARNAN │ +354 565 1940 │ stjarnan@stjarnan.is VÖRUMERKJAHANDBÓK │ UMF STJARNAN 43
VÖRUMERKJAHANDBÓK │ UMF STJARNAN 44 UMF STJARNAN │ +354 565 1940 │ stjarnan@stjarnan.is 6.06.0 ANNAÐ EFNI »

6.1

AÐGANGSKORT

Við höfum hannað aðgangskort með það að markmiði að sýna betri og fullmótaða framsetningu á ásýnd Stjörnunnar. Kortið samanstendur af blárri forsíðu þar sem merki Stjörnunnar sést og baksíðu þar sem allar nauðsynlegar upplýsingar er að finna.

UMF STJARNAN │ +354 565 1940 │ stjarnan@stjarnan.is VÖRUMERKJAHANDBÓK │ UMF STJARNAN 45

6.2 SKILRÍKI/AUÐKENNI

Við höfum hannað skilríki fyrir viðburði Stjörnunnar, leiki eða aðrar meiri háttar uppákomur þar sem þörf er á aðgangskorti. Skilríkin eru sérstaklega gagnleg til að sýna aðgang ein staklinga, sérstaklega hvort þeir séu fjölmiðlafólk, gestir, starfsfólk eða virkir félagsmenn. Skilríkin samanstanda af forsíðu þar sem merki Stjörnunnar er sérstaklega áberandi sem og það nafn, titill og texti sem við á. Á bakhlið skilríkjanna er rými fyrir valfrjálsan texta sem og fyrir þær upplýsingar sem við á.

VÖRUMERKJAHANDBÓK │ UMF STJARNAN 46 UMF STJARNAN │ +354 565 1940 │ stjarnan@stjarnan.is

6.3 SKRIFBLOKK STJÖRNUNNAR

Til að auðkenna Stjörnuna enn frekar og koma nafninu okkar á framfæri og inn á heimili og vinnustaði viðskiptavina okkar höfum við hannað skrifblokkir. Með því að nota skrifblokkir til markaðssetningar mun vörumerkið Stjarnan stöðugt vera sjáanlegt og með síendurtekinni notkun verða þekkjanlegt af myndinni einni saman.

UMF STJARNAN │ +354 565 1940 │ stjarnan@stjarnan.is VÖRUMERKJAHANDBÓK │ UMF STJARNAN 47
VÖRUMERKJAHANDBÓK │ UMF STJARNAN 48 UMF STJARNAN │ +354 565 1940 │ stjarnan@stjarnan.is 7.07.0 VEFSÍÐA »

6.1 OPINBER VEFSÍÐA STJÖRNUNNAR

Tilgangur heimasíðu Stjörnunnar er að upplýsa um skipulag og hagnýtar upplýsingar sem snúa að rekstri og starfsemi félagsins. Hún er ekki hugsuð sem viðburðasíða eða fréttaveita enda sinna samfélagsmiðlar félagsins nú orðið því hlutverki á mun auðveldari og hagkvæmari hátt.

UMF STJARNAN │ +354 565 1940 │ stjarnan@stjarnan.is VÖRUMERKJAHANDBÓK │ UMF STJARNAN 49
UMF STJARNAN │ +354 565 1940 │ stjarnan@stjarnan.is VÖRUMERKJAHANDBÓK │ UMF STJARNAN 51 UMF Stjarnan Stjörnuheimilinu v/ Ásgarð 210 Garðabær, Ísland stjarnan@stjarnan.is www.stjarnan.is [+354] 565 1940
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.