www.fgks.org   »   [go: up one dir, main page]

Fara í innihald

Árni Páll Árnason

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Árni Páll Árnason (ÁPÁ)

Fæðingardagur: 23. maí 1966 (1966-05-23) (58 ára)
Fæðingarstaður: Reykjavík
4. þingmaður Suðvesturkjördæmis
Flokkur: Merki Samfylkingarinnar Samfylkingin
Þingsetutímabil
2007-2013 í Suðvest. fyrir Samf.
2013-2016 í Suðvest. fyrir Samf.
= stjórnarsinni
Embætti
2007-2009 Formaður Íslandsdeildar Norðurlandaráðs
2009 Formaður allsherjarnefndar
2009-2010 Félags- og tryggingamálaráðherra
2010-2011 Efnahags- og viðskiptaráðherra
2013-2016 Formaður Samfylkingarinnar
Tenglar
Æviágrip á vef AlþingisVefsíða

Árni Páll Árnason er varaforseti Eftirlitsstofnunar EFTA, fyrrum þingmaður Suðvesturkjördæmis, fyrrum formaður Samfylkingarinnar - jafnaðarflokks Íslands og fyrrverandi félagsmálaráðherra og efnahags- og viðskiptaráðherra.

Menntun og fyrri störf

[breyta | breyta frumkóða]

Árni Páll lauk stúdentspróf frá Menntaskólanum við Hamrahlíð 1985 og lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands 1991. Hann stundaði nám í Evrópurétti við Collège d’Europe í Brugge í Belgíu 1991-1992, í Evrópurétti við Harvard Law School / European University Institute í Flórens 1999. Árni Páll varð héraðsdómslögmaður 1997.

Hann var ráðgjafi utanríkisráðherra í Evrópumálum 1992-1994, deildarsérfræðingur á viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins 1994 og lögfræðingur varnarmálaskrifstofu 1994-1995. Hann starfaði sem lögmaður með eigin rekstur og ráðgjafi 1998-2007.

Eftir að stjórnmálaferli Árna Páls lauk starfaði hann sem varaframkvæmdastjóri Uppbyggingasjóðs EES frá 2018-2021 og sem varaforseti ESA, Eftirlitsstofnunar EFTA, frá 2022.

Stjórnmálaferill

[breyta | breyta frumkóða]

Árni Páll sat á þingi fyrir Samfylkinguna í Suðvesturkjördæmi frá árinu 2007 til 2016. Árni Páll komst ekki inn á þing í kosningunum árið 2016 þegar Samfylkingin hlaut afhroð kosninga með 5,7% og aðeins þrjá þingmenn inn.

Ráðherraferill

[breyta | breyta frumkóða]

Hann var félags- og tryggingamálaráðherra 2009-2010 og efnahags- og viðskiptaráðherra frá 2010 til 2011.

Formaður Samfylkingarnar

[breyta | breyta frumkóða]

Árni Páll var kjörinn formaður Samfylkingarinnar í febrúar 2013, og hafði betur með 62,2% gegn Guðbjarti Hannessyni í kjörinu, sem allir flokksmenn í Samfylkingunni gátu tekið þátt í með netkosningu. Oddný G. Harðardóttir tók við af Árna sem formaður flokksins árið 2016.


Fyrirrennari:
Jóhanna Sigurðardóttir
Formaður Samfylkingarinnar
(2. febrúar 20133. júní 2016)
Eftirmaður:
Oddný G. Harðardóttir
Fyrirrennari:
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir
Félags- og tryggingamálaráðherra
(10. maí 20092. september 2010)
Eftirmaður:
Guðbjartur Hannesson
Fyrirrennari:
Gylfi Magnússon
Efnahags- og viðskiptaráðherra
(2. september 201031. desember 2011)
Eftirmaður:
Steingrímur J. Sigfússon


  Þetta æviágrip er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.