www.fgks.org   »   [go: up one dir, main page]

Fara í innihald

Kokteilsósa

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 2. mars 2021 kl. 18:56 eftir Þjarkur (spjall | framlög) Útgáfa frá 2. mars 2021 kl. 18:56 eftir Þjarkur (spjall | framlög) (Þjarkur færði Kokkteilsósa á Kokteilsósa: Stafsetning í öllum orðabókum, Fréttablaðinu, Morgunblaðinu, og framan á Gunnars kokteilsósu)
Kokkteilsósa á disk

Kokkteilsósa er heiti yfir kalda ljósrauða sósu sem að grunni er yfirleitt majónes en stundum sýrður rjómi. Við það er svo bætt annaðhvort tómatsósu eða tómatmauki og kryddað með til dæmis sinnepi og öðru kryddi. Á Íslandi er sósan töluvert vinsæl og mest notuð með skyndibitafæði þá oftast með frönskum kartöflum.

Uppruni

Því verið haldið fram að sósan væri íslensk að uppruna og var það haft eftir Úlfari Eysteinsyni á veitingastaðnum Þremur frökkum hjá Úlfari í útvarpsviðtali og samkvæmt honum var hún komin frá Magnúsi Björnssyni á veitingastaðnum Aski. Magnús hefur þó borið það af sér og sagt að sósan sé einföld og ódýrari útgáfa af þúsund eyja sósu.[1]

Kokkteilsósan var mjög vinsæl á veitingastaðnum Tommaborgurum snemma á níunda áratug 20. aldar. Áður var algengast að bera hana fram með fiski eða skelfiski en með skyndibitamenningunni komst sú hefð á að bera hana fram með frönskum kartöflum.

Í dægurmenningu

Kokkteilsósa kom fyrir í einu atriða kvikmyndarinnar Með allt á hreinu. Þar var hún blönduð meðal annars með lýsi eða laxerolíu til að gera hana óæta en í myndinni kemur fram að sósan hafi batnað til muna við þetta.

Í auglýsingum IcelandairGóð hugmynd frá Íslandi“ (2006) biður breti um „cocktail sauce“ með frönskunum sínum.

Tilvísanir

  1. „Stóra kokkteilsósu málið“. Konan sem kyndir ofninn sin. Sótt 3. nóvember.

Tenglar

  Þessi matar eða drykkjargrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.