www.fgks.org   »   [go: up one dir, main page]

Fara í innihald

Brim hf.

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 12. maí 2021 kl. 09:34 eftir Þjarkur (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. maí 2021 kl. 09:34 eftir Þjarkur (spjall | framlög) (Þjarkur færði HB Grandi á Brim hf.)
Brim
Rekstrarform Hlutafélag
Stofnað 2004
Staðsetning Reykjavík
Starfsemi Sjávarútvegur

Brim hf. (áður þekkt sem HB Grandi)[1] er íslenskt sjávarútvegsfyrirtæki með höfuðstöðvar í Reykjavík. Fyrirtækið er eitt það stærsta á sviði fiskveiða og fiskvinnslu á Íslandi. Brim rekur líka fiskvinnslu á Akranesi og Vopnafirði.

Sjávarútvegsfyrirtækið Grandi hf. var stofnað 8. nóvember 1985 með sameiningu Ísbjarnarins (stofnaður 1944) og Bæjarútgerðar Reykjavíkur (stofnuð 1934). „HB“ var bætt við nafnið þegar fyrirtækið yfirtók Harald Böðvarsson hf. á Akranesi árið 2004. Nafninu var breytt í Brim árið 2019.[1]

  Þessi fyrirtækjagrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
  1. 1,0 1,1 „HB Grandi verður Brim og kaupir sölufélögin“. www.frettabladid.is. Sótt 12. maí 2021.