www.fgks.org   »   [go: up one dir, main page]

Fara í innihald

Neðanjarðarlest

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 5. mars 2021 kl. 09:43 eftir Þjarkur (spjall | framlög) Útgáfa frá 5. mars 2021 kl. 09:43 eftir Þjarkur (spjall | framlög) ("Borgarlest" er/var íhiðminnsta notað fyrir ofanjarðarlestarkerfi. Myndir.)
Neðanjarðarlestakerfi Lundúnaborgar
Hluti neðanjarðarlestakerfis Santiago í Síle ofar jörðu

Neðanjarðarlest eða borgarlest er lestarkerfi sem notað er í borgum og á þéttbýlissvæðum. Neðanjarðarlestir geta borið mikinn fjölda farþega og ferðatíðni er há. Elsta neðanjarðarlestakerfi í heimi er Neðanjarðarlestakerfi Lundúnaborgar sem opnað var árið 1863 og er enn þann dag í dag eitt umfangsmesta neðanjarðarlestakerfi í heimi.

Í borgum eins og Berlín, Tókýó og London eru neðanjarðarlestakerfi það viðamikil að meirihluti borgara nota það sem aðalsamgöngumáta. Neðanjarðarlestakerfi Tókýóborgar er viðamesta neðanjarðarlestakerfi í heimi og ferðast 7 milljón farþegar með því daglega. Í Evrópu eru Lundúnir og Madrid með stærstu kerfin og Moskva og París með hæsta farþegafjöldan. Í Bandaríkjunum er New York-borg með langflesta farþega en einnig ferðast margir með neðanjarðarlestum í Chicago, Boston, Washington D.C. og Philadelphiu. Borgir í Bandaríkjunum eru almennt dreifbýlli heldur en borgir í Evrópu og í mörgum borgum er einkabíllinn aðal samgöngumátinn. Í slíkum borgum ná neðanjarðarlestakerfi því oft ekki að festa sig í sessi. Gott dæmi um slíkar borgir eru Los Angeles, Dallas og Houston.