Temporary Disabled. :) please Go back 1944 - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið www.fgks.org » Address: [go: up one dir, main page] Include Form Remove Scripts Accept Cookies Show Images Show Referer Rotate13 Base64 Strip Meta Strip Title Session Cookies Forsíða Handahófsvalið Í nágrenninu Skrá inn Stillingar Fjárframlög Um Wikipediu Fyrirvarar Leita 1944 ár Tungumál Vakta Breyta Ár 1941 1942 1943 – 1944 – 1945 1946 1947 Áratugir 1931–1940 – 1941–1950 – 1951–1960 Aldir 19. öldin – 20. öldin – 21. öldin Árið 1944 (MCMXLIV í rómverskum tölum) Efnisyfirlit 1 Á Íslandi 2 Erlendis 3 Nóbelsverðlaunin 4 Tilvísanir Á Íslandi breyta 3. febrúar - Hótel Ísland brann í eldsvoða. 25. febrúar - Alþingi samþykkti einróma að sambandslög milli Íslands og Danmerkur væru fallin úr gildi. 10. mars - Flugfélagið Loftleiðir hóf starfsemi. 20.-23. maí - Þjóðaratkvæðagreiðsla um nýja stjórnarskrá Íslands. 16. júní - Alþingi hélt fund í Reykjavík og felldi niður sambandslög Íslands og Danmerkur og setti nýja stjórnarskrá í gildi. Konungsríkið Ísland var lagt af. 17. júní - Lýðveldishátíðin 1944 var haldin á Þingvöllum í tilefni af stofnun lýðveldis á Íslandi. Sveinn Björnsson var kjörinn af Alþingi fyrsti forseti Íslands. Byggðasafn Reykjanesbæjar opnaði. 31. ágúst - Íþróttabandalag Reykjavíkur var stofnað. 6. september - Ölfusárbrú hrundi þegar tveir vörubílar fóru yfir ána og féllu þeir í hana. Báðir bílstjórar björguðust en annar sem var tvítugur bjargaðist á undraverðan hátt og barst 1,2 kílómetra niður ána og hélt sér í bíldekk. Ný brú var reist rúmu ári eftir atvikið. [1] 16. september - Flugvél bandaríska hersins brotlenti á Eyjafjallajökli. Allir komust lífs af. 24. október - Skeena, kanadískur tundurspillir, fórst við Viðey í óveðri. 15 létust en 198 björguðust. Kvennablaðið Melkorka kom fyrst út. Þjóðernishreyfing Íslendinga lagðist af. Fædd 29. mars - Þórir Baldursson, hljómlistarmaður. 18. júní - Stefán Baldursson, leikstjóri og fyrrv. Þjóðleikhússtjóri. 14. nóvember - Björn Bjarnason, stjórnmálamaður. Dáin Erlendis breyta 14. janúar - Sovéskir hermenn hófu sókn að Leníngrad og Novgorod. 15. janúar - Jarðskjálfti varð í San Juan-héraði í Argentínu. 10.000 létust. 10. mars - Giftar konur máttu starfa sem kennarar í Bretlandi. 18. mars - Vesúvíus gaus á Ítalíu, þúsundir flýðu heimili sín og tugir létust. 2. apríl - Bandamenn hófu loftárásir á Búkarest. Næstu 4 og hálfan mánuð létust yfir 5.500. 16. apríl - Bandamenn hófu loftárásir á Belgrad. 1.100 létust. 5. maí - Mahatma Gandhi var sleppt úr fangelsi af heilsufarsástæðum. 4. júní - Rómarborg var frelsuð af Bandamönnum. 6. júní - Árásin á Normandí hófst. 155.000 hermenn komu á land við norðurstrendur Frakklands og hófu innreið sína í meginland Evrópu. 25. júní - Orrustan um Tali-Ihantala í Finnlandi: Finnar vörðust árás Sovétmanna. 20. júlí - Adolf Hitler lifði af banatilræði. 4. ágúst - Anne Frank og fjölskylda fundust á afgirtu svæði í vöruhúsi í Amsterdam. Hollenskur uppljóstari benti Gestapo á þau. Þau voru flutt í útrýmingarbúðir. Faðir Önnu var sá eini sem lifði af. 2. september - Síðasta aftakan var framkvæmd í Finnlandi. 21. október - Aachen varð fyrsta borgin sem var hertekin af bandamönnum. 25. október - Rauði herinn frelsaði Kirkenes í norður-Noregi. 7. nóvember - Forsetakosningar í Bandaríkjunum: Franklin D. Roosevelt sitjandi forseti vann sigur. 12. nóvember - Stærsta þýska herskipinu, Tirpitz, var sökkt af breska sjóhernum nálægt Tromsö; 950-1.200 létust. 3. desember - Bardagar byrjuðu milli konungssinna og kommúnista í Grikklandi; gríska borgarastyrjöldin hófst. 16. desember: Ardennasóknin hófst. Þjóðverjar reyndu að snúa stríðinu sér í vil. Golden Globe-verðlaunin fóru fyrst fram. Vichy-stjórnin í Frakklandi leið undir lok. Fædd 26. mars - Diana Ross, söngkona 7. apríl - Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands 1998 - 2005. 21. maí - Mary Robinson, fv. forseti Írlands. 6. júní - Edgar Froese, þýskur tónlistarmaður, stofnandi hljómsveitarinnar Tangerine Dream. 13. júní - Ban Ki-moon, aðalritari Sameinuðu þjóðanna. Dáin 24. apríl - Michael Pedersen Friis, danskur forsætisráðherra (f. 1857). 30. desember - Romain Rolland, franskur rithöfundur og Nóbelsverðlaunahafi (f. 1866). Nóbelsverðlaunin breyta Eðlisfræði - Isidor Isaac Rabi Efnafræði - Otto Hahn Læknisfræði - Joseph Erlanger, Herbert Spencer Gasser Bókmenntir - Johannes Vilhelm Jensen Friðarverðlaun - Alþjóðaráð Rauða Krossins Tilvísanir breyta ↑ Morgunblaðið 7. september 1944 Tímarit.is
1941 1942 1943 – 1944 – 1945 1946 1947
1931–1940 – 1941–1950 – 1951–1960
19. öldin – 20. öldin – 21. öldin
Árið 1944 (MCMXLIV í rómverskum tölum)
Fædd
Dáin