www.fgks.org   »   [go: up one dir, main page]

Fréttir dagsins - 20240718

Valdaklíkurnar í Brussel og Strassbúrg hafa nú ákveðið að Úrsúla vond og Leiðinleg, verði áfram einræðisherra Evrópu, til að vernda Lýgræðið. Þrefalt húrra.


Maríugleði (eða Jesúsolía)

Eins og allir vita fékk María unnusta Jósefs, í sængurgjöf olíurnar Myrru, Frankincense (Reykelsi) og Jómfrúaroliu (gull[olíu]). Ég kynntist M. og F. olíunum vel, eftir heilræðum frá viturri konu sem jafnframt er heimspekifræðingur, þegar hún ráðlagði notkun þeirra á hundinn Ljúf, en hann var þá veikur af blöðruhálskrabba.

Það er efni í staka færslu að segja frá því hvernig hundurinn sem var of veikur til að fá skurðaðgerð og aðeins hugað fimm mánuðum að hámarki, náði sér að mestu á rúmlega hálfu ári og til fulls á hálfu-öðru ári og lifði til tæplega fjórtán ára aldurs (sem er hátt fyrir Sheffer hund).

Eitt af því sem hjálpaði honum, var að við nudduðum Frankincense og stundum einnig Myrru, á svæðið milli eistna og rass, á hverjum degi stundum tvisvar á dag - en blöðruhálsinn er þar innan við húðina. Fimm mánuðina sem dýralæknirinn spáði honum, tók hann stórstígum framförum, en við gerðum fleira honum til hjálpar.

Í hitteðfyrra þegar ég lá vikum saman á spítala, og svo aftur eina viku í árslok, kenndi mér ein hjúkkan að nota það sem heitir Lífolía, en húðin getur þornað all svakalega við langlegu, hvítnað og flagnað. Þegar ég fór að nota Lífolíuna - sem framleidd er af Móðurjörð fyrir austan og er frábær vara - sá ég að með smá fikti og tjúni gæti ég gert mína eigin.

Ein fyrrverandi hafði mikinn áhuga á ilmkjarnaolíum, og slíkt getur smitast.

Allavega, í tæp tvö ár hef ég notað Maríugleði (jesúsolíu) sem ég blanda sjálfur, og ákvað að deila hér, því satt best að segja, þá er hún afbragð. ... enda mælti María sjálf með henni, og eins og allir vita var sonur hennar best upp aldi sonur allra tíma.

Blandan er einföld, Jómfrúarolía, Myrra, Frankincense, Lavender og Teatree, eftir persónulegum hluföllum. Myrran er erfið, því hún þykknar, svo hrista þarf vel eftirá (sem ekki var búið að gera á meðfylgjandi mynd) en best er að setja glasið á miðstöðvarofn fyrst því þá blandast betur þegar hrist er, en ekki of lengi. Umfram olían er best geymd í kæli.

Myrruna er oft erfitt að kaupa hérlendis, en auðvelt að versla t.d. á iHerb, eða öðrum póstverslunum. Hinar olíurnar fást allar hérlendis. Glösin eru keypt frá Kína. Ég mæli með, fyrir þá sem nenna, að prófa sig áfram, lofa því að engin verður eftirsjá af þessu.

Þess utan, mæli ég í hástert með Lífolíu frá Móðir Jörð, og er þessi færsla í engu ætluð til að skyggja þar á.

 

 

IMG_0070 

 

... Maríunáð væri e.t.v. betra heiti?


Öfga-vinstrið þekkist á einföldum mynstrum

Það sem aldrei er rætt um í Evrópu (Ísland meðtalið), er hvernig reiðir af í héruðum sem stýrt er af öfga-vinstrinu (sem í dag eru allir stjórnmálaflokkar hérlendis).

 

Til dæmis er aldrei rætt í "okkar" löndum hvernig reiðir af í borgum Bandaríkjanna s.s. New York, San Franciso, Chicago, Seattle og slíkum borgum, þar sem fólk hefur það skítt, félagslegt ástand að hruni komið, efnahagur í molum, og réttar-öryggi nánast horfið.

Þannig var það í Sovétríkjunum síðustu fimmtán árin og ástæðan fyrir að þau hrundu, þannig var það í Bretlandi frá Churchill 1955 fram til Thatcher 1979, þegar Breska heimsveldið féll innanfrá (Imploded) og endaði sem fátækasta ríki Evrópu (The Sick man of Europe)*.

Antivistarnir og Samsæra[út]skýrendurnir, sem eru "stýrða andstaða" sósíalismans, ræða helst ekki þessi atriði, að benda fólki á hvernig fer fyrir menningu þeirra þegar Marxistar og Kommúnistar yfirtaka kerfin og menningarfræðsluna; allt deyr.

Tökum dæmi um þöggunina og jaðarsetninguna. Fyrir fáeinum árum flutti Elon Musk sitt persónulega lögheimili til Texas. Áróðurinn á vesturlöndum sagði lítið um hvers vegna, en sló upp í fyrirsögnum "að hann væri að græða persónulega á að greiða lægri skatta, h-lv auðkýfingurinn."

En þetta er ekki málið og var aldrei.

Rétt eins og með Joe Rogan og Roseanne Barr sem einnig hafa flutt frá Kaliforníu til Texas, ásamt tugþúsundum annarra, þá er verið að flýja menningardauða, ofríki og heilaþvott öfga vinstrisins.

Í dag streymir fólk til Tennesse, Florida og Suður Dakóta auk Texas, hvaðanæva úr ríkjum (fylkjum) Bandaríkjanna og borgum sem stýrt er af Alþýðuflokknum (Democratic party), og fólk útskýrir hvers vegna það flýr, en "að græða á lægri sköttum" er yfirleitt neðst á listanum.

Enginn vestrænn borgari er á móti því að greiða skatta, hef aldrei hitt slíkan, en í lifandi menningu þekkir fólk muninn á hófsömu stjórnkerfi ásamt vitrænum sköttum, eða sjálfsréttlæti öfgafullrar elítu og skattaráni.

Fólk kann ekki að ræða rangsköttun í dag, og hefur engan skilning á stjörnlagasáttmálum, hvað þá muninn á Siðfræði og Siðferði (Ethics vs. Morals).

Þú vekur ekki styttur. Þú flýrð.

Hvert?

Í huganum, í verkum þínum, í skoðunum þínum; ef þú skilur ekki, ertu siðrofsstytta.

Á dögunum flutti Elon Musk höfuðstöðvar Space X og X (Twitter) frá Kaliforníu til Texas, og hann útskýrði vandlega hvers vegna. Eins og hann hefur oftlega bent á, "það er orðið kvalafullt og erfitt að mæta í vinnuna, vegna sorans sem þarf að vaða í gegnum."

Nýlega undirbjó Kalifornía - sem oft er uppnefnd Kommafornía, vestra - sérstök lög til að a) refsa fyrirtækjum sem fækka starfsfólki til að ná endum saman í ofríkinu, og b) ef þau dirfast að undirbúa flutninga í önnur Bandarísk ríki (Fylki). Þannig virkar Marxismi og Sósíalismi; hann telur sjálfum sér trú um að vitleysan sem hann froðufellir yfir aðra, sé raunsæ, þar til ekkert er eftir.

Hér minnum við á hugtak sem eitt sinn allir skildu en nú enginn; rökrétt óraunsæi er ekki hið sama og órökrétt raunsæi. (Logic vs. Reason)

Ef stýrða andstaðan tekur ekki svona einföld dæmi og slær þeim upp, og notar þau til að slá vopnin úr höndum valdasjúkra "sjálfstórmenna" þá er antivistinn stýrð-andstaða, rétt eins og þegar hann baular á fólk árum saman "þeir ætla að drepa okkur, þið verið að vakna" í stað þess að ræða við fólk.

Já, Antivstar stýrðu andstöðunnar haga sér nákvæmlega eins og valdasjúkir sósíalistar og erfðaelíta; þeir predíka yfir fólki frekar en að ræða við það.

Að lokum vil ég minnast á; þetta blogg er spennulosun eingöngu og skyldi með engu móti taka alvarlega. Það er lífshættulegt bloggurum að vera teknir alvarlega, þegar siðrof ríður húsum og menningin deyr.

---

Rifjum upp hornin þrjú sem spámaðurinn Daníel sá renna saman með augum og eyrum og raunguræða* formælingar, við teljum þetta vera hornin þrjú sem eru afgangs á dýrinu með sjö höfuð og tíu horn, og tengjast áminningum Erkiengilsins Mikaels til engla safnaðanna sjö. {sjá logostal.com seven-angels}

Félagshyggja (Socialism), Valdhyggja (Authoritarianism) og Efnishyggja (Materialism) eru þrjár eitraðar systur-hyggjur, sem allar fletja út huga fólks, deyða menningu og afmá siðmenningu (og breyta náttúruheimspeki (Vísindum) í innprentunarvísindi (Science orthodoxy, Scientism), þar til ekkert er eftir nema annaðhvort hrun eða innfall (Implosion).

Því miður geta fylgt því glæpir á borð við kæft smáviðskiptalíf, eitraðar fjöldasprautur og styrjaldir!

Síðan við fyrst unnum þessa greiningu fyrir fáeinum árum, sáum við smámsaman að siðrofs-kynslóðin sem öll er böðuð, eða maríneruð, í þessum dylgjum og formælingum, þekkir ekki þessar hugmyndir, hvað þá náttúru þeirra, en lifir þó öll í eitrinu, kafnandi og spýjandi.

Við ræðum félagshyggjuna mest, en ástæðan er að hana er auðveldast að benda á og útskýra. Þegar hugurinn hefur náð að umlykja eða hjúpa skilning á henni, fer hann sjálfkrafa að taka eftir og skilja hinar tvær.

Það væri þó freistandi að taka þetta saman í hóflegri ritgerð, einn daginn, en við erum ekki lengur í bloggi og útskýringum og hljóðvarpi, heldur spennulosun eingöngu. Vitnisburðar verkinu er lokið og vitjunartími (Reckoning) er hafinn, og þá hörfa sendiboðarnir í hella sína og sleikja sárin.

Þegar vitnað er gegn djöflum, vættum og föllnum englum, myndast svöðusár á sálinni sem eigi verða greiðlega skýrð.

 

 

 

* Við notum Raungunarræða fyrir "Dialectics" frekar en Þráttunarræða eða Þráttunarhyggja, í merkingunni; orðræða sem snýr á á raunguna.

* Thatcher hins vegar breytti snauðu Bretlandi í eitt af iðnveldunum sjö, á einum litlum áratug, en nú er það aftur innfallið, þrem áratugum eftir að hennar eigin menn ýttu henni út í horn.


Úr samræðum - 20240716

"Við vitum öll að elítan er orðin geðbiluð, en hvernig á að koma henni á geðlyf?"


Kapítalísminn sem felur Mónópólismann sem enginn ræðir um

Fyrir mörgum öldum, þegar ungir menn voru búnir að fatta plottið, að sambúð og gifting væri fangelsi, frelsissvipting og kúgun fyrir þá, fundu konur upp á "heimanmundi".

Þær borguðu með sér, en sagan snéri því á hvolf og "valdakerfin" segja þér að "þeir hafi keypt þær."

Karlaveldið er lýgi, rétt eins og Kapítalisminn,

Marxistar viðhalda lýginni um kapítalistann, til að Mónopolistarnir á bak við þá geti sogið til sín öll fyrirtæki miðstéttarinnar og húseignir og landeignir allra sem dirfast að eiga eitthvað.

Allt er lýgi, en þú þorir ekki að rýna lýgina, því þá kemur einhver sem stjórnast af föllnum (ljós)englum og "rökræðir" við þig og uppnefnir.

--hinthint

 

Það er ekkert að því að vera kúgaður af konum, við höfum lifað þannig frá dögum Evu, en það er hallærislegt að ljúga öllu og raunguræða (Dialectics). Þá endar allt í vitleysu.

Svo vitnað sé í John Trudell: "Ef þú lýgur að fólki hver þeirra eigin saga er, svo það veit ekki lengur hvert það er, þá fremurðu [hið eiginlega] þjóðarmorð.

 

Stúdíó útgáfan af "shadow over sisterland," sjá hér (YT).

 

 

the-21st-cent-compass

 

 

... og þá má selja fólki hvaða rugl sem vera skal

 

trump-jfk-iwo-jima-iconic-A

 

 

Viðbót 15:30

Úr daglega lífinu:
Kunningi minn er með ameríska suðurríkjafánann í bílskúrnum. Í vikunni var frúin að taka til í skúrnum og skúrhurðin opin, og viti menn, löggan keyrði í hlaðið að "forvitnast" um fánann. Án gríns!
Það verður bráðum of seint að flýja; og ef þú fattaðir ekki í sprautuhelförinni hvað er að gerast, þá fattarðu það aldrei. Einföldun; hættu að vekja styttur, og flýðu.

 


Smáfærsla um tölfræði

Eins og allir vita var fyrirsjáanlegt með rýni í sögulega farsótta tölfræði eftir 1950, hvernig Covid farsóttin færi. Við rýndum þetta og birtum tölur á FB, og bárum saman við vikulega samantekt á opinberum tölum WHO og John Hopkins fyrstu sex mánuðina.

Síðan rýndum við næstu tólf mánuðina opinberar tölur Ítalíu, Íslands og USA/CDC og sáum að allt stóðst. Enn sem komið er, þá virðist yðar einlægtur sá eini á heimsvísu sem hefur vogað sér slíka fásinnu, en við ræddum þetta í ritgerðinni Húmanistadulspeki, sumarið 2020.

Einföldun; við vissum með einfaldri tölfræði að um var að ræða lygaraplágu og með einfaldri lyfjasögu var þegar ljóst, svo sem reynst hefur rétt verið, að sprautan væri efnavopn.

Mikið var rætt um draugasögur af Spánsku veikinni 1918 og Svarta dauða á miðöldum, sem engin lýsigögn eru til um, en enginn vildi ræða rekjanlegar tölur, vandlega skráðar, eftir 1950!; dulspekin reið öllum hugum. Öllum.

Enn vill enginn ræða þetta og gera upp - almenningur með hausinn í sandinum eins og frægur fiðurfénaður, Elítan (og elítan) lætur eins og ekkert sé, og antivistar öskra ennþá Vaknaðu svo allir eru ýmist hásir af áreynslu eða löngu snúnir annað.

Lék mér í dag að skoða tölur úr Bresku kosningunum frá á dögunum, og setti upp í töflureikni ... ákvað, eins og í fyrrgreindum FB færslum að birta mynd, frekar en texta, ... en ég áttaði mig fljótt á því vorið 2020 að 99 prósent "fólks" hefur engan áhuga á rekjanlegum staðreyndum,  og því erum við hætt að ræða staðreyndir og spennulosum og djókum þess í stað.

Fyrir þá sem fylgst hafa með athugasemdum hér varðandi Íslenskar durgakosningar, þá er þetta í þeim saung, og minnum á að innan við 20 prósent Íslenskra kjósenda höfðu áhuga á búranum sem nú hverfur af Andardúnsbænum og eins er með snúlluna sem stillt er upp í staðinn, en þú þarft að rýna tölur og snúa þeim við, og rýna þær á ný, eins og sagt er í kóngsins köbin, The kölski hides in the smallspråg."

Velkomin[n] til Helvítis, þú mátt kommenta.

 

451390085_1068885614895940_3318031700787462050_n

smellið á myndina til að sjá stærri útgáfu

 

 


-jæja þá-

Kennedýmómentið er komið, og [potta]karlarnir sem ég ræddi við í morgun eru allir sammála um að þetta sé á pari - vitundarlega - við fánann á Iwo Jima í stríðinu og stærra en JFK morðið í Texas 11.11.1963.
 
Allir trúa þó karlarnir enn á eitursprauturnar og lygarapláguna.
Það er einmitt málið, þeir fatta hvernig vitundarvélunin virkar.
 
Það breytir ekki því, að hvernig sem ég velti fyrir mér öllu því myndefni og upplýsingum sem fram hafa komið, að mínu mati er tilræðið sviðsett.
 
Spurningin er hvort maður eigi að nenna að telja til allar baunirnar sem sýna fram á það?
 
Sem minnir á annað. Ég hef stillt mig, eftir að Tóta Stríðsfjörð lýsti því yfir að nú myndi Nató sigra, því það hefði sterkara orðalag og að Orbán væri bjáni.
 
... og annað. Gamli vasahnífurinn minn er ónýtur. Fór í verkfærabúðir að leita mér að vasahníf og komst að því að slíkt fæst ekki lengur hér í útópíunni!
 
Allavega, Trump er núna stærri en frelsisgyðjan fyrir múgsefjun vesturlanda, og slík dulspeki verður ekki auðveldlega niður-kveðin (Spellbreaked).
 
 
Fáum lag í minningu John Trudell, í tilefni dagsins ...
 
 
 
 
 
"Replacing people-s story or memory of themselves, is a form of genocide."
--John Trudell

Lýgin um feðra- eða karlaveldið

Hefurðu nokkurn tíma staðið karlmann að því að þora að móðga ömmu sína eða eldri frúr yfirleitt? Nei. Ég veit að þú trúir á lýgina um karlaveldi, og þú þorir ekki að ögra þinni eigin hugvillu í þessum efnum, og hvers vegna ekki?

 
Um það bil 9 af hverjum 10 föngum eru karlkyns. Konur stjórna menningunni og hafa alltaf gert, og þú veist það; hverjir eru snillingar í að farða sig og fegra og klæða af sér línurnar og þykjast vera eitthvað annað?
 
Já, konur, og þær stjórna öllu og hafa alltaf gert.
 
Valdstjórnin og hugmyndakerfin, eru bara lítið brotabrot af tilverunni, kjáni.
 
Að karlar fengu að hafa atvinnulífið, herinn og stjórnmálin, var flótti, ekki vald. Og núna er búið að taka það af þeim og enginn "ballans" lengur neins staðar.

 

 


Hámarkið sumarið í ár

Þar sem hagvöxtur er yfirleitt mestur á veturna hérlendis, mun ríkisstjórnin fella burt sumarið 2025 og breyta í vetur. Reglugerð væntanleg með haustinu.
 
Næsta ár verður sumsé vetur í heilt ár, til að bjarga hagvextinum.

Gúrkupúnktar

Ég hef forðast að ræða eftirfarandi, en það tengist landvættum. Gosin á Reykjanesi síðan 2020, eru ekki stök gos, þetta eru Reykjaneseldar, í annað sinn á þúsund árum. Síðast þegar Reykjenseldar geisuðu hafði farið fram stórfelldur glæpur á landinu, samfara siðrofi.

Enginn kannast við þá sögu þá né nú.

Hitti Suðurnesjakonu í dag sem sagði mér hvernig öfga-vinstrið sem stjórnar "grindavíkuraðgerðum" hefði komið sér hjá aðstoð við 380 fjölskyldur, með lagaflækju ...
 
Kom á aðra staði í dag, og var tekinn tali af "almennum" einstaklingum sem trúðu á Lygarapláguna og Eitursprautuna á sínum tíma. Þau bæði sögðu mér, nánast samhljóða að "þetta var bara áróður byggður á flensu og sprauturnar glæpur, en við viljum samt ekki hlusta á antivistana." Allir sem ég ræði við, undanfarin þrjú ár segja meir og minna hið sama. En Antivistar sem hafa Sannleikann, neita að spyrja "hvers vegna þolir okkur enginn?"
 
Ein spurning:
Hvaða tveir einir stjórnmálamanna á Vesturlöndum hafa reynt að stilla til friðar í Úkraínu, og fengið skammir, sniðgengi og þöggun í hattinn? Ég leik mér stundum að spyrja hinn almenna mann að þessu, og glotti þegar svarið er augnaráð, en ég er aldrei spurður til baka "nei hverjir?"

 
Matrix; fyrsta dáleiðslan síðan 325 AD sem bæði Antivistar og Almenningur er sammála um.
 
Að lokum: Fico biður öfga-vinstrið afsökunar á að hann lifði af banatilræðið. Og eitt enn, manstu þegar sælureitunum í Þjórsárdal var lokað vegna reglugerðar, og svo eitt enn; bjúrókratarnir sem ætla sér að smíða "virki" í Brákarey hefja gjaldtöku við Brákareyjarbrú á næstunni ...
 
Annars hef ég ekkert að segja þessa dagana. Við dóum öll 11. mars 2020, og erum núna í Helvíti, og við komumst ekki út nema með Bæn, Iðrun, Fyrirgefningu og Vitnisburði.
 
... og enginn kippti sér upp við á dögunum, að Evrópskur stjórnmálaflokkur var afbankaður (deBanked) á dögunum og öllum reikningum lokað, ræðandi um innfallna siðmenningu sem ætlar sér að sigra í kjarnorku-heimsstyrjöld, nýbúin að fremja tífaldan nasistaglæp ... bwahahahahaha ... og allt í gúddí.
 
Einfalt.
 
--hinthint
--Dáin menning
--Flýðu
 
 
 
 
 
Þurfti að koma við í apóteki og kaupa sprittglas eins og keypt var í gamladaga til að þrífa sár og soleis. Spurði um lítið spritt, og Daman fór beint með mig að hillunni þar sem eru spritt-gel, og nei sagði ég, svo hún fór og leitaði, og fann. Þegar ég greiddi, sagðún eitthvað og ég svaraði með einhverju sniðugu, eins og gengur þegar miðaldra afgangsmenn eru afgreiddir af ungum skvísum, "ha" svaraði hún, en ég sagði þá "þetta var bara athugasemd því ég kemst ekki á félagsnetið." Þetta fannst henni fyndið.
 
Maður getur eitthvað ennþá, þó það nái ekki langt nú orðið.
 
Að öllu gríni slepptu, ef þig vantar mælingu fyrir allsherjar sturlun, ofan á allt sem gengið hefur á undanfarin fimm ár; fyrirhugaðar borholur "carbfix" við Straumsvík ... Í alvöru? Þarf að afpakka hversu stórhættuleg og umfangsmikil geðbilun er hér á ferð? Nú veist þú líklega hversu margir eru að ræða þessi mál á Samfélagsvefjunum þessa dagana, eða danska staðfestingu á fyrirhugaðri niðurdælingu á geislavirkum úrgangi, en byrjum hér: Veistu hvað "water table" er? Veistu hvernig vatn veraldarinnar endurnýjar sig, eða yfirleitt hvaðan það kemur? Viltu afpökkun á því stóra dæmi eða ertu hluti af dauðaköltinu?
 
Áttarðu þig á því hvaða stórslys er í uppsiglingu fyrir vatnsból og jarðskjálftavirkni á Höfuðborgarsvæðinu í kjölfar niðurdælinganna á Hellisheiði? Eða fattaraðu að við verðum afbankaðir ef við ræðum það?
 
Aflíkömnuðu andarnir, Nephilim (Disembodied spirits), trúa því að ef þeir geti lokkað mann-kynið út í allsherjar sjálfsvíg - sálarlegt sem líkamlegt - fái þeir réttindi til að endurlíkamnast (re-corporate) og umboð til að yfirtaka alla tilveru á jörðinni.
Án gríns. Lestu ritningarnar.
 
Hvers vegna heldurðu að Hollývúdd og Marvel og allir sem geta í heimselítunni séu endalaust að selja endurlífgunar-líkömnun á manngreyum (Humanoid) með ofurkrafta og yfirskilvitlega hæfileika? Heldurðu að það sé saklaus fantasía?
 
Hvers vegna trúum við á endurholdgun - re-incarnation, re-corporeal - frekar en endurfæðingu? Ég hef sjálfur látið lokkast af þeirri djöfullegu tæklingu og iðrast þess sárt.
 
... og það tók mig ellefu ár að fatta, eftir að ég fyrst las skilgreiningu á muninum, í bók eftir okkar helgaða aldingja (Sage), Benjamín H. J. Eiríksson!

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband