Innlent

Í­búar í Grinda­vík fá rýmri heimildir á morgun

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Frá Grindavík í dag.
Frá Grindavík í dag. Vísir/Einar

Íbúum í Grindavík verður leyft að fara á fólksbílum inn í bæinn á morgun til að sækja verðmæti. Þá verða sendibílar og aðrir bílar allt að 3,5 tonn í heildarþyngd og kerrur auk þess leyfðar. Þá verður ekki haldinn upplýsingafundur almannavarna á morgun. 

Þetta er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu frá almannavörnum. Þar kemur fram að íbúum verði heimilt að fara inn í bæinn frá klukkan 09:00 til 16:00 en þá eigi allir að yfirgefa bæinn.

Minnt er á að hættustig almannavarna er í gildi. Líkur á fyrirvaralausu eldgosi séu taldar minni en áður. Svigrúm til þess að bregðast við eldgosi séu taldar rýmri en áður. Öryggi íbúa sé haft í fyrirrúmi og því gæti þurft að rýma bæinn með mjög stuttum fyrirvara.

Tekið er fram að breytingar sem taki í gildi á morgun, föstudaginn 24. nóvember séu þær að bílar sem krefjast almennra ökuréttinda B verða leyfðir, sendibílar og aðrir bílar sem eru allt að 3.5 tonn í heildarþyngd. Einnig verða kerrur leyfðar í íbúðahverfum.

Ekki verður haldinn upplýsingafundur Almannavarna á morgun, föstudaginn 24. nóvember. Segir í tilkynningu almannavarna að næsti fundur verði haldinn þegar ástæða er til.

Tilhögun verður áfram eftirfarandi hætti:

  • Íbúar í Grindavík beðnir um að skrá sig á www.island.is og fá þar heimild til þess að fara inn. Heimildin mun berast fljótt.
  • Þeir íbúar sem nú þegar hafa fengið staðfesta skráningu á beiðni til að fara inn í húseign þurfa ekki að sækja um aftur.
  • Grindavík er lokuð fyrir öllum öðrum en íbúum bæjarins og þeim sem aðstoða íbúa.
  • Grindavíkurvegur er lokaður, en hægt er að aka Nesveg og Suðurstrandarveg.
  • Mælst er til þess að fólk komi á eigin bílum, hámark 1 bíll á hvert heimili. Ekki er æskilegt að börn séu tekin með sökum aðstæðna á staðnum.
  • Áfram eru gámabílar, gámar eða gámaflutningatæki, stórir sendibílar (yfir 3.5 tonn), ekki leyfðir.
  • Hvorki er virkt frárennsli né rennandi vatn þannig að ekki hægt að nota salerni í húsum í Grindavík. Salerni eru í bænum við grunnskólana tvo.
  • Mælt er með að fólk komi með vatn og önnur matföng fyrir daginn því ekki er hægt að nálgast slíkt í bænum.
  • Hafa ber í huga að hús gætu verið ótrygg. Hægt er að hafa samband við viðbragðsaðila á staðnum.
  • Þeim íbúum í skemmdum húsum sem þegar hafa fengið leyfi er heimilt að flytja búslóðir sínar burt.
  • Mikilvægt er að hvert og eitt heimili skrái hjá sér þau verðmæti sem tekin eru úr húsunum og hafi samband við sitt tryggingafélags vegna þess.
  • Eigendur húsa eru hvattir til þess að koma kyndingu í lag en von er á kólnandi veðri á næstunni.
  • Iðnaðarmenn og íbúar verða að störfum í húsum þar sem hitaveita er ekki í lagi.
  • Íbúar eru hvattir til þess að ganga um og frá húsum sínum með þeim hætti að komið geti til rýminga með stuttum fyrirvara.
  • Mikilvægt er að þau sem fara til Grindavíkur fylgi tilmælum viðbragðsaðila á öllum stundum.
  • Athygli er vakin á að á sama tíma og íbúar fá aðgang er unnið að öðrum verkefnum í bænum.
  • Fjölmiðlum er heimilaður aðgangur.

Komi til rýmingar vegna hættuástands munu viðbragðsaðilar þeyta sírenum og ljósmerkjum á ökutækjum og þýðir það tafarlaus rýming á svæðinu samkvæmt rýmingaráætlun. Rýmingarleiðir út bænum eru eftir Suðurstrandavegi eða Nesvegi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×