Fréttir | 03. júlí 2024 - kl. 12:50
TextílLab á vegum Textílmiðstöðvarinnar á Blönduósi, sem er fyrsta stafræna textílsmiðjan á Íslandi, er ekki á meðal þeirra FabLab-smiðja sem háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið og mennta- og barnamálaráðuneytið ætla að framlengja samninga við. Á vef Stjórnarráðsins í gær kom fram að ráðuneytin hafi ákveðið að framlengja samninga við FabLab-smiðjur á Íslandi um þrjú ár en þeir runnu út um áramótin.
Samkvæmt heimildum Húnahornsins hefur Textílmiðstöðin á Blönduósi reynt að fá samning við ráðuneytin en ekki tekist. Svo virðist sem að orðið textíll sé að flækjast fyrir embættismönnum, sem gera sér ekki grein fyrir því að TextílLabið á Blönduósi er einstakt, ekki bara á Íslandi, heldur víðar.
Á vef Stjórnarráðsins kemur fram framlög til 11 FabLab-smiðja hækka um samtals 91 milljón króna á samningstímabilinu, eða úr 324 milljónum í 415 milljónir á næstu þremur árum. Smiðjurnar þjóna annars vegar tæknimenntun í grunn- og framhaldsskólum og hins vegar íbúum, atvinnulífi og frumkvöðlum. Þær eru vettvangur til nýsköpunar og eru búnar tækjum og tólum til þess að gera frumgerðir og efla þekkingu á stafrænni framleiðslutækni. Smiðjurnar lúta alþjóðlegum skilgreiningum um Fab Lab sem tryggir aðgengi almennings, opnunartíma, ákveðin tækjakost og aðferðarfræði. Fram ekmur að ráðuneytin hafi lagt mikla áherslu á samstarf við heimamenn á viðkomandi stöðum um fjármögnun og uppbyggingu smiðjanna.
Tengd frétt:
Nýir samningar um rekstur FabLab-smiðja